fbpx

“Rétt” gæði

by | Oct 1, 2019 | Markaðsmál, Vöruþróun | 0 comments

Í vöruþróun er mikilvægt að skila réttum gæðum til skilgreinds markhóps.  Forsenda þess að vita hver “rétt” gæði eru, er að þekkja þarfir viðskiptavinarins.

Það má vel vera að þú getir gert fullkomnari vöru, tæknilegri, flottari, léttari, smartari o.s.frv.  En ef það er ekki það sem markhópurinn hefur áhuga á, eða er viljugur að borga fyrir, skiptir engu þó þú “getir” búið til eitthvað fullkomnara.

Varastu þess vegna að reyna bara að selja það sem þú getur framleitt, framleiddu frekar það sem þú getur selt – með hagnaði.  Þú verður nefnilega að geta uppfyllt þarfir viðskiptavinarinn með hagnaði.

Ef þú hefur áhuga á vöru- og/eða vörumerkjaþróun gætir þú haft gagn og gaman að ebók sem VERT gaf út um vöruþróun.  Þú getur sótt þitt ókeypis eintak hér.

 

Deildu gleðinni

Tengdar greinar

Kostnaðaraðhald getur verið hrikalega dýrt!

Kostnaðaraðhald getur verið hrikalega dýrt!

Allir hafa heyrt söguna af því þegar Colgate jók söluna hjá sér með því að stækka gatið á túpunni. Svipaða sögu er að segja af erlendu jógúrt vörumerki.  Fyrir nokkrum árum, jók það vörumerki framlegð sína með því að setja minna jógúrt í hverja dollu og halda sama...