fbpx

Hvenær er rétti tíminn fyrir CRM kerfi?

by | Feb 15, 2019 | HubSpot | 0 comments

Ef þú hefur komist að þeirri niðurstöðu að það sé æskilegt fyrir þitt fyrirtæki að byrja að nota CRM kerfi er næsta spurning einföld:

Hvenær er rétti tíminn til að taka upp CRM kerfi?

Mörg fyrirtæki ákveða að byrja smátt.  Brjóta þetta niður í nokkur innleiðingarskref.  Byrja á því að halda utan um sölutækifæri í kefinu, en eru svo með lista viðskiptavina í einhverju Excel skjali.  Svona getur þetta gengið um tíma, en á einhverjum tímapunkti lenda allir í því að Excel skjalið dugar ekki lengur til.

  • Það verður sífellt flóknara að halda utan um upplýsingar og tryggja sýn yfir tengiliði, fyrirtæki, sölutækifæri og samninga.
  • Flakk á milli mismunandi geymslustaða á upplýsingum verður tímafrekara og hægir á söluteyminu þínu og allri þjónustu, t.d. fara í póstinn þinn til að ná í póstfang, hafa samband við þjónustuborð eða verkstæði til að kanna hvað fór síðast á milli manna, og kanna svo í bókhaldskerfinu hvort sala hefur átt sér stað síðan þú ræddir síðast við viðskiptavininn.
  • Ef að starfsmaður hættir tapast mikilvægar upplýsingar og jafnvel mikilvægir samningar.  Oft verður verulegt þjónustufall því upplýsingarnar voru í pósthólfi starfsmanns eða bara í kollinum á honum.  Það leiðir til þess að enginn getur tekið við verkefni sem var í gangi.

Í stuttu máli er svarið einfalt – þú getur komist af án CRM kerfis um ákveðinn tíma, en stjórnun viðskiptatengla er eitt það mikilvægasta sem fyrirtæki gerir, svo því fyrr sem þú tekur málið föstum tökum, því betra.  Það er betra að taka upp CRM kerfi áður en það er komið neyðarástand og fyrirtækið þitt er vaxið upp úr því að vera rekið í helling af Excel skjölum.

En hvað kostar CRM kerfi?

Verð á CRM kerfum er mjög breytilegt og vert er að hafa í huga að það hentar ekki það sama öllum. Nokkur atriði sem nauðsynlegt er að hafa í huga:

  • Sum CRM kefi rukka fyrir hvern notanda, t.d ISK 5.000 fyrir einn, ISK 10.000 fyrir tvo o.s.frv.
  • Sum CRM kerfi rukka skv. gagnamagni.  Því meiri gögn eða því fleiri færslur, því hærra verð.
  • Sum rukka eftir því sem meiri virkni bætist við.

Þrátt fyrir að það geti verið flókið að bera saman verð mismunandi kerfa þar sem ekki er rukkað eftir sama kerfi er það jákvæða í þessu að það hefur aldrei verið einfaldara að taka upp CRM kerfi og aldrei verið einfaldara að innleiða það.

Ef þú hefur áhuga á að taka upp CRM kerfi skaltu kynna þér hvað er í boði.  Ef þú hefur áhuga á því að borga ekkert fyrir kerfið getur þú heyrt í VERT.  VERT er vottaður samstarfsaðili HubSpot – það er m.a. CRM kerfi sem er … ÓKEYPIS… um alla tíð!  100% ókeypis kerfi – það er erfitt að toppa það.

 

Þú getur fundið aðrar, ekki síður áhugaverðar, greinar um CRM hér – HVAÐ ER CRM? og HVER ÆTTI AÐ NOTA CRM?

 

Kynntu þér kosti ókeypis CRM kerfis sem uppfyllir þarfir kröfuhörðustu viðskiptavina.

CRM kerfi HubSpot er ókeypis – að eilífu! Ekkert smáaletur.
HubSpot CRM felur í sér allt sem þú þarft til að skipuleggja, fylgjast með og næra sölutækifæri og viðskiptavini
– OG aftur, það er 100% ókeypis, um alla tíð.

Deildu gleðinni

Tengdar greinar