Til að draga saman mikilvægustu atriðin varðandi Growing The Core
Árangursríkur vöxtur krefst samspils milli þeirra þátta sem vörumerkið er nú þegar þekkt fyrir og þeirra þátta sem halda vörumerkinu fersku og viðeigandi.
Drepa aukavörurnar
Losa okkur við allar þær aukavörur sem eru ekki að skila okkur áætluðum hagnaði og eru að trufla og stela virði frá kjarnavörunni okkar sem við viljum vera þekkt fyrir.
Brandaðu þetta eins og Bond
Horfa til baka og muna hvað vörumerkið er þekkt fyrir, horfa fram á veginn og sjá fyrir nýjar tískubylgjur og skoða beina og óbeina samkeppni. Viðhalda góðu samspili milli þessara þátta til þess að bæta og endurnýja vöruna.
Varan og hugmyndin um vöruna
Bjóða fram vöru sem neytandinn hefur áhuga á að kaupa og selja neytendum aukið virði gegnum þá upplifun sem vörumerkið er þekkt fyrir, kveikja tilfinningar og láta vöruna og upplifun vinna saman.
Bylgjur Endurnýjunar
Fylgja stefnum og straumum markaðarins og viðhalda endurnýjun á kjarnavörunni í samhengi við það sem er að gerast í umhverfinu. Spyrja sig spurninga hvar varan er á líftímaskeiðinu. Grípa tækifæri sem eru til staðar, gera kjarnan enþá betri og keppa að því að ná samkeppnisforskoti þannig.
Ef þessum skrefum er fylgt vel eftir eykur það líkurnar á árangursríkum vexti sem byggja á styrkleikum og kjarnahæfni fyrirtækisins. Það eru þeir þættir sem skapa samkeppnisforskot.
Þetta var fjórði og síðasti hluti í hugmyndafræðinni Growing The Core eftir David Taylor