Við þökkum þeim sem kíktu til okkar í Innflutningsglögg fimmtudaginn 25. nóvember 2010.
Það voru nokkrir sem við söknuðum, en það var ekki að sjá að nokkur hefði látið sig vanta. Húsið var fullt frá 17-19.
Þeir sem ekki sáu sér fært að mæta, eða við gleymdum að bjóða (getur alltaf gerst), eru velkomnir á Þóroddsstaði hvenær sem er. Það er alltaf heitt á könnunni, oftast öl í kælinum og oft eldur í arninum.
Takk fyrir okkur.