fbpx

Stundum þarf vörumerki að segja FUCK!

by | Mar 11, 2011 | Branding | 1 comment

Við erum öll vörumerki.

Það er bara mismikið lagt í markaðssetninguna.  Við sjáum þetta útum allt, í öllum tegundum miðla, hvort sem það í sinni einföldustu (og kannski ódýrustu) mynd á forsíðu Séð og heyrt, á bloggi, öldum ljósvakans  eða síðum dagblaða.  Allt sem þú gerir – hvernig þú talar, klæðir þig og hvaða félagsskap þú heldur – allt hefur þetta áhrif á vörumerkið “þú”.

Listamenn lifa á því að byggja upp sterkt vörumerki fyrir sjálfa sig .  Stóru listamennirnir eru meira að segja með vörumerkjastjóra.

Ef þú ert vörumerkjastjóri og þér sýnist síðasta “herferð” hafa fært vörumerkið þitt í einhverja átt sem þú ert ekki alveg sáttur við þarftu að gera eitthvað sem vinnur gegn því, eða leiðréttir það.

Natalie Portman hefur greinilega viljað eiga við og breyta  ásýnd sinni með þessu atriði í SNL.  Stundum þurfa “vörumerki” nefnilega að gera eitthvað róttækt til að til að hafa áhrif á ímynd sína.  Stundum þurfa vörumerki hreinlega að segja FUCK!

 


Natalie Portman Rap by fictionforfiction

Deildu gleðinni

Tengdar greinar

Handahófs markaðssetning er rugl

Handahófs markaðssetning er rugl

Markaðssetning af handahófi er hörmuleg hugmynd.   Hættu að gera bara eitthvað, svona þegar þú manst eftir því að þú þarft víst að gera eitthvað í marketing. Markaðsstarf gengur útá að auka virði fyrir viðskiptavini þína.  Markaðsstarf kostar peninga.  Það er því sóun...

Áhrif lita í viðskiptum.

Áhrif lita í viðskiptum.

Litur er tungumál, litur nær athygli þinni. Rétt eins og ilmurinn af uppáhaldsréttnum þínum getur breytt skapi þínu geta mismunandi litir einnig haft áhrif á skapsveiflur þínar. Litir eru óaðskiljanlegur hluti af lífi okkar, við dæmum ástand heilsu okkar, uppskeru...