Þegar hópur vinnur saman að því að þróa nýja vöru eða þjónustu er margt sem getur komið í veg fyrir árangur. Má þar nefna valdabaráttu innan hópsins og tímaskort. Aðrir þættir eins og reynsluleysi og ofmat á eigin hæfileikum eru einnig mögulega risastór vandamál, sbr. árangur nýrra viðskiptafræðinga verkefninu í eftirfarandi TED myndbandi.
Vöruþróun er þolinmæðisvinna.
Gott samstarf, skýr verkaskipting og stjórnun á verkferlum er lykillinn. Einnig er mikilvægt að búa til prototýpur eins oft og hægt er. Það jafnast nefnilega fátt á við að reyna og mistakast til að læra.
Þetta myndband er áhugaVERT með ofangreint í huga. Hugsaðu sérstaklega um þetta þegar þú horfir – stór umbun til þeirra sem ekki kunna neitt leiða til verri niðurstöðu, MIKLU verri. Getur verið að þetta hafi verið eitt af því sem gerðist í íslenska bankakerfinu og í mörgum stórum fyrirtækjum sem fóru í þrot í bankahruninu. Reynslulaust (kannski vanhæft) fólk stóð frammi fyrir RISA bónusum fyrir að skila „árangri“. Nú er ekki langt síðan WOW hrundi – hvaða vandamál ætli hafi verið þar af þeim sem nefnd voru að framan? Reynsluleysi, ofmat á eigin hæfi… eða eitthvað annað?