Ég verð að lýsa yfir ánægju með nafnið á nýju samlokunum hjá Stöðinni – Dagnýjar samlokur. Þær eru útbúnar í dag og seldar í dag – Dagnýjar.
Það getur verið erfitt að velja nafn á nýtt fyrirtæki eða nýja vöru. Helst viltu að nafnið sé athyglisvert, áhugavert og umtalsvert.
Athyglisvert svo fólk staldri við. Áhugavert svo fólk kynni sér það betur, og umtalsvert svo þetta títt nefnda fólk, sem þú vaktir athygli og áhuga hjá, minnist á nafnið í ræðu og jafnvel rit.
Ef að þér tekst að ná athygli og vekja athygli með nafninu þarf að vera einhver skýring á bak við það hvers vegna þetta nafn varð fyrir valinu. Einhver saga sem skýrir hvernig þetta varð nafnið á vörumerkinu. Þannig myndar þú tengingu við vörumerkið.
Við fáum oft spurninguna; hvers vegna heitið þið VERT? Stutta svarið er: því allt sem þú gerir á helst að vera athyglisVERT, áhugaVERT og umtalsVERT. Þannig nærðu hámarks árangri.
Í tilfelli samlokana sem ég minntist á í byrjun segir sagan á bak við nafnið sig alveg sjálf. Þú áttar þig strax á “sögunni”. Þú skilur fyrir hvað varan stendur, auk þess er þetta sniðugur orðaleikur og orðasmíði.
Því segi ég vel gert Shell, eða Stöðin eða er það Skeljungur.