Í gær yfirtók ferðaskrifstofufyrirtækið WOWair ferðaskrifstofuna Iceland Express. Eitt af því athyglisverða í því yfirtökuferli er að vörumerkið Iceland Express verður lagt á hilluna.
Það verður að teljast athyglisverð ákvörðun að vörumerki sem byggt hefur verið upp frá árinu 2003, sé ekki álitið sterkara en svo.
Sterk vörumerki eru ekki byggð á einum degi, sérstaklega í ferðaþjónustuiðnaði þar sem lykilmarkhópar er að finna á alþjóðlegum mörkuðum. Því er þetta kjarkmikið skref hjá Wow án nokkurs vafa, og kannski áfellisdómur yfir vörumerkjauppbyggingu Iceland Express. Eða hvað? Ekki má heldur vanmeta hversu erfitt það yrði að leggja niður “eigin” vörumerki fyrir það sem keypt er, þar þarf einnig að yfirstíga ákveðna tilfinningasemi væntanlega.