Eftirfarandi auglýsing hefur verið kölluð kynþáttafordómafyllsta auglýsing allra tíma. Óháð því hvort það er rétt eða ekki hefur Mountain dew tekið on-line auglýsingu með geitinni Felicia úr birtingu og fjarlægt af öllum vefsíðum sem þeir hafa stjórn á.
Auglýsingin sýnir konu sem er illa farin eftir ofbeldi reyna að bera kennsl á ofbeldisaðilann. Í uppröðuninni eru 5 þeldökkir karlmenn og áðurnefnd geit. Meðan “lineup-ið” er í gangi er Felicia (geitin) með hótanir. Ef maður sér þessa auglýsingu staka er hún óskiljanleg, en sjón er sögu ríkari:
Ef myndbandið spilast ekki má sjá að hér
En til að setja geitina Felicia í samhengi þá er hún hluti af On-line herferð sem Mountain dew í Bandaríkjunum hefur verið með í gangi. Felicia hefur birst áður og vakti nokkra athygli og forvitni (grein á Adweek). Markmiðið var augljóslega að gera eitthvað athyglisVERT, áhugaVERT og umtalsVERT. Það tókst vissulega, en það er ekki mjög skrítið að auglýsingin hér fyrir ofan þyki ganga of langt.
Fyrri auglýsingar