Það er von þú spyrjir.
Oft sér maður eitthvað sem er verið að nota í markaðslegum tilgangi sem er skrýtið, en þegar maður pælir í því skilur maður hver hugsunin er á bakvið það. Stundum ekki 🙂
Þegar þú til dæmis sérð kengúru í moonboots með trefil og vettlinga utan á umbúðum um STÓRA FRYSTIPOKA sem eru sérstaklega hentugir fyrir lambalæri er erfitt að átta sig hver pælingin er.
Kannski náði hún einmitt tilgangi sínum með því að einhver fór að velta þessu fyrir sér og brosti – eins og ég gerði 🙂