fbpx

Gættu að því hver hefur aðgang

by | Jun 25, 2012 | Samfélagsmiðlar | 0 comments

Fyrirtæki verða að gæta vel að því hver hefur aðgang að samfélagsmiðlum þeirra.  Hver einasti aðili sem er admin á Twitter, Facebook, foursquare eða öðrum samfélagsmiðlum getur skipt um password eða hent hinum admin aðilunum út.  Þannig verður sá aðili einráður á viðkomandi miðli.

Fyrsta skref – úthlutaðu þessum réttindum að vel ígrunduðu máli. Sem betur fer eru flestir samfélagsmiðlar komnir með möguleika á því að setja fólk í mismunandi hlutverk (það eru s.s. ekki allir admin sem hafa aðgang).

Ef einhver sem hefur aðgang að miðlunum þínum lætur af störfum, hvort sem það er í góðu eða illu, verður að passa að taka admin réttindi af viðkomandi.  Alveg eins og það verður að fá hjá þeim lykla að atvinnuhúsnæðinu.

Samfélagsmiðlarnir þínir eru verðmæti – gættu þeirra.

—–

Hér eru 2 dæmi um misnotkun sem höfundur varð vitni að.  Annars vegar lenti Fíton í því að einhver tók yfir Twitter accountinn þeirra, var með leiðinlegar yfirlýsingar og byrjaði að fylgja aðilum sem stofan hefur væntanlega ekki verið að fylgja áður.  Hins vegar lent points.com í því að einhver kastaði þessari óskemmtilegu kveðju á Facebook vini þeirra.  Hjá Points.com var þetta horfið innan nokkura mínútna.

Deildu gleðinni

Tengdar greinar