Markaðsfræði er ekki aðgerð og ekki verkefni, markaðsleg hugsun er/á að vera mænan í fyrirtækinu.
Hver einasta ákvörðun sem tekin er, þarf að taka tillit til markaðslegra áhrifa. Fyrirtæki þurfa að vera með markaðsstefnu sem yfirleitt er unnin til þriggja ára í senn, sem og markaðsáætlun sem listar upp verkþætti og aðgerðir næstu 12 mánaða í markaðsstarfi fyrirtækisins. En áætlanagerð má heldur aldrei koma í veg fyrir að menn séu tilbúnir að grípa þau tækifæri sem gefast, má ekki koma í veg fyrir að menn séu á tánum. Þá má heldur ekki sitja fastur við sinn keip og tala um að “áætlun hafi ekki gert ráð fyrir þessu”.
Breska veðmálafyrirtækið Betfair er heldur betur á tánum þessa dagana. Næsta sunnudag fer fram stórleikur í ensku úrvalsdeildinni þegar Manchester liðin eigast við á Old Trafford. Ljóst er að aldrei þessu vant eiga aðdáendur liðanna í raun sameiginlegan óvin, Argentínumanninn Carlos Tevez.
Mikið hefur gengið á í samskiptum liðanna og er skemmst að minnast þess þegar aðdádendur City keyptu umhverfismerkingu í miðri Manchester borg til að stríða United aðdáendum.
En yfir í Betfair. Þeir hafa staðsett merkta ruslabíla víðsvegar fyrir utan Old Trafford þar sem aðdáendum beggja liða er gert kleift að sýna andúð sína í verki með því að henda þangað merktum Tevez treyjum, sem eru jú allnokkrar eflaust. Þær treyjur sem safnast verða síðan gefnar til góðgerðarmála í heimalandi Tevez, Argentínu.
Frábær leið (og ódýr), til að tengjast enn betur kjarnamarkhópnum sínum sem eru jú aðdáendur knattspyrnuliðanna. Auk þess sem þetta gæti slakað aðeins á spennu milli stuðningsmanna.
Myndefni er fengið frá Daily Mail .