Intel er fyrirtæki sem almenningur ætti í raun ekki að þekkja. Þeir framleiða eitthvað sem almenningur skilur ekki og sér aldrei. Samt er þetta með þekktari vörumerkjum heims.
Þeir voru frumherjar í því sem kallast “Ingredient branding”. Örgjörvar eru í raun eitt af þeim hráefnum sem þarf að nota til að búa til tölvu. Líkt og hveiti í köku. Með snilldar markaðsherferð tókst Intel að byggja upp sterkt vörumerki. Þeim tókst að gera brandið sitt að gæðastimpli sem tölvuframleiðendur heims vildu setja á tölvurnar sínar og það sem var enn betra, vildu ólmir setja aftan við allar auglýsingar frá sér.
Nýlega setti Intel nýjan örgjörva á markað. Eitthvað sem er agalega óáhugavert fyrir okkur almenninginn. Til að byggja upp eftirvæntingu fyrir þessum nýja örgjörva framleiddu þeir þessa afbragðs auglýsingu.