30 sekúndu auglýsing í Super Bowl 2017 kostaði … situru??? … $5,02 milljónir. Það er að segja yfir 5 MILLJÓNIR dollara. Það gerir hálfan milljarð íslenskar krónur og 66 milljónum betur (miðað við gengið $1=113ISK).
Það er eins gott að vanda sig þegar svo mikið er lagt undir.
Það eru eflaust allir sem hafa einhvern áhuga á Super Bowl auglýsingum búnir að sjá þær helstu í ár.
Hér getur þú þó séð þær sem þykja bestar á einum stað. Í þessum YouTube playlista eru þær 10 bestu. Eftir að hafa horft á flestar auglýsingarnar langaði mig eiginlega að gera annan playlista með 10 lélegustu (því nóg var af þeim) en lét þetta duga 🙂
Neðst í þessum pósti getur þú skoðað allar hinar hjá AdBlitz ásamt nánari upplýsingum um hvernig kostnaðurinn hefur þróast frá 1967 til dagsins í dag.
Á Youtube rás AdBlitz getur þú svo séð allar auglýsingarnar (flokkað eftir starfsgreinum), kosið þá auglýsingu sem þú kannt best við og deilt með vinum.
Ef þú hefur áhuga á hvað þetta kostar svo allt saman má hér sjá þróunina frá 1967-2017 á kostnaði við að birta 30 sek Super Bowl auglýsingu. Nánar hér.