Markaðssetning af handahófi er hörmuleg hugmynd.
Hættu að gera bara eitthvað, svona þegar þú manst eftir því að þú þarft víst að gera eitthvað í marketing.
Markaðsstarf gengur útá að auka virði fyrir viðskiptavini þína. Markaðsstarf kostar peninga. Það er því sóun á peningum að gera bara eitthvað af handahófi. Einnig er það sóun á tækifærum að gera ekki neitt.
Vertu með leikáætlun. Settu áætlunina niður á blað og framfylgdu svo áætluninni.
Þú ert að byggja vörumerki. Áætlunin þín er teikningin og vörumerkið er húsið. Ef smiðurinn (sem ert þú) fylgir ekki teikningunni mun kofinn hrynja.
Ef þú gerir bara eitthvað, gerist bara eitthvað.
Upphaflega birt 2013 – ennþá áhugaVERT 🙂