fbpx

MEÐFERÐ PERSÓNUUPPLÝSINGA

Meðferð per­sónu­upp­lýs­inga

Kæri vinur VERT
Skilmálar þessir eiga við um vöfrun á vefum okkar, upplýsingar um tölvupóstföng og almennt um meðferð upplýsinga.

Vefkökur
Vefkökur (e: „cookies“) eru litlar textaskrár sem margar vefsíður nota, þar á meðal okkar. Vefkökur eru búnar til þegar þú heimsækir vefsíðurnar og netþjónninn okkar setur þær á harða diskinn þinn. Kökurnar okkar innihalda ekki persónuupplýsingar og aðrar vefsíður geta ekki lesið upplýsingar sem eru geymdar í kökum frá okkur. Að auki geta aðeins okkar netþjónar lesið kökurnar frá okkur en ekki annarra vefsíðna.
Flestir vafrar eru stilltir á að taka sjálfvirkt við kökum. Viljir þú ekki njóta ávinningsins af kökum getur þú afvirkjað þennan eiginleika í vafranum þínum. Þú getur líka skoðað vefsíðuna okkar án þess að nota kökur, en það getur takmarkað suma eiginleika.Kökur eru yfirleitt notaðar til þess að notandi þurfi ekki að slá inn notendanafn eða lykilorð eða breyta stillingum í hvert sinn sem hann heimsækir vefsíðu sem hann hefur áður skráð sig inn á.Hægt er að breyta öryggisstillingum á flestum netvöfrum þannig að þeir taki ekki á móti kökum. Einnig er hægt að eyða kökum með einföldum hætti.Upplýsingar á heimasíðu Microsoft um hvernig hægt er að eyða kökum er hægt að finna hér og hér er hægt að finna hvernig þú eyðir kökum í Chrome.

Vefmælingar
VERT notar Google Analytics til vefmælinga á vefjum sínum. Við hverja komu inn á vefinn okkar eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir o.fl.

Áframsending persónugreinanlegra gagna til þriðja aðila
VERT deilir ekki gögnum um þig til þriðja aðila. Við skuldbindum okkur til þess að varðveita framangreindar upplýsingar á öruggan og tryggan hátt og munum ekki miðla á nokkurn hátt upplýsingum sem skráðar hafa verið í ofangreindum tilgangi til þriðja aðila án þín samþykkis eða í kjölfar dómsúrskurðar.

Með notkun okkar á Google Analytics sendum við hins vegar frá okkur ópersónugreinanleg aðgangsgögn, þ.e. hvenær síðan var heimsótt, hversu lengi og hvaðan og þess háttar er greint fyrir tölulegar upplýsingar. Þetta notum við svo til að betrumbæta vefinn okkar. Lesa má nánar um Google Analytics hér.

Póstlisti
VERT-markaðsstofa heldur úti póstlista til þeirra sem hafa áhuga á málefnum er varða fyrirtækið og öðru markaðstengdu efni.
Skráningin á póstlistann er ókeypis og án bindingar.
Áskrifandi getur afskráð sig hvenær sem er með því að smella á “unsubscribe” tengilinn neðst í hverju skeyti.

Afturköllunarréttur
Þú hefur rétt á að afturkalla samþykki þitt fyrir notkun VERT á persónuupplýsingum þínum.
Þú getur hvenær sem er farið fram á að VERT breyti, hætti að nota eða eyði persónugreinanlegum gögnum um þig.
Við viljum þó taka það fram að við eyðum ekki gögnum án þess að fá það staðfest að þú ert þú.

Hlekkir
Vefsíðurnar okkar geta innihaldið hlekki á aðrar vefsíður. Þótt við gerum okkar ítrasta til að athuga þessa beinu hlekki, berum við ekki ábyrgð á efni vefsíðanna sem við hlekkjum á. Að auki berum við enga ábyrgð á efni vefsíðna sem hlekkja á okkar vefsíðu.

Takmarkanir
VERT áskilur sér rétt til að breyta þessum reglum um gagnavernd hvenær sem er í samræmi við ákvæði gagnaverndarlaga. Við breytingu þá þarft þú að samþykkja skilmálana aftur.

Hafa samband

Hvort sem erindið er stórt eða smátt, þá langar okkur að heyra í þér.

Hafa

samband

Skipholt 50d
105 Reykjavík

vert@vert.is
+354 568 7676