VERT MARKAÐSSTOFA
Vinnur með viðskiptavinum sínum í stefnumótun, rannsóknum, vöruþróun og vörumerkjavinnu auk þess að framleiða kynningarefni af öllu tagi.
Stafræn Markaðssetning
Ef þú ert að hugsa um Google auglýsingar ertu á réttum stað. Hvort sem þú ert að hugsa um kostaða tengla eða Google display auglýsingar þá getum hjálpað.
- Halda utan um samfélagsmiðla
- Senda út markpóst
- Leitarvélabestað heimasíðuna þína (SEO)
- Hannað fyrir þig vefborða
- Heimasíðugerð
- Gera lendingarsíður
- búið til App
- og margt fleira
Ef þú telur að þitt fyrirtækið þurfi ráðgjöf í strafrænum heimi markaðssetningar þá erum við með reynsluna, kunnáttuna og getuna til að leiðbeina þér og þínu fyrirtæki.
VERT er vottaður Google og MailChimp samstarfsaðili.
Nánar um það hvernig við vinnum
VERT leggur mikla áherslu á kosti heildrænnar markaðssetningar, þvert á alla miðla.
Hvort sem það er á samfélagsmiðlum, vefborðum á heimasíðum, markpóstsendingum eða með leitarvélabestun, þá þarftu að vera með áætlun og fylgja henni eftir. Mikilvægast er samt að gera sér grein fyrir í hvað þú ert að eyða peningnum.
Einn helsti kostur stafrænnar markaðsetningar er sá að það er einfaldara en á hefðbundnum miðlum að reikna ROI (return of investment). Þannig er einfaldara að mæla hvað er að virka og hvað ekki.
Þú vilt ekki að væntanlegir viðskiptavinir finni þig ekki þegar þeir leita að lausnum að þeim vandamálum sem þeir hafa. Þess vegna þarftu að gefa þér tíma í að markaðsetja þitt fyrirtæki á stafrænum miðlum.
Hjá VERT starfa Google vottaðir markaðsráðgjafar með mikla reynslu af hverju því sem viðkemur markaðsetningu á stafrænum miðlum.
Nánar um Google display auglýsingar og kostaða tengla
Google myndauglýsingar (display) eru myndaauglýsingar sem birtast þegar vafrað er um netið.
Google kostaðir tenglar
Hvað eru kostaðir tenglar?
Kostaðir tenglar eru keyptar leitarniðurstöður á Google leitarvélinni. Kostaðir tenglar birtast í leitarniðurstöðum á fyrirfram ákveðnum leitarorðum. Hægt er að stjórna textanum sem fylgir tenglinum og hvaða síður viðkomandi lendir á þegar hann smellir á tengilinn. Greitt er fyrir smelli en ekki birtingar.
Hvers vegna kostaðir tenglar?
Kosturinn við kostaða tengla er að hægt er að miða á ákveðin leitarorð sem passa vel við framboð viðkomandi fyrirtækis. Kostaðir tenglar birtast þeim sem sýna áhuga á framboðinu á þeim tíma sem þeir sýna því áhuga. Kostaðir tenglar virka vel þegar vefsíðan er ekki ofarlega í náttúrulegri leit á leitarorðum sem passa vel við framboðið. Einnig er það mikill kostur að einungis er greitt fyrir smelli en ekki birtingu. Þannig að greitt er fyrir þá sem sýna auglýsingunni áhuga en ekki öðrum.
Svona vinnur þú með Google auglýsingar
Í byrjun er gerð leitarorða- og samkeppnisgreining.
Eftir það eru leitarorð valin og skipt upp í viðeigandi flokka eftir þema þeirra. Hver leitarorðaflokkur fær 3-4 auglýsingar með mismunandi texta.
Viðeigandi lendingarsíðu er úthlutað á auglýsingarnar, hvort sem um ræðir heimasíðu fyrirtækis, undirsíðu þess eða sérhannaða lendingarsíðu.
Því næst er herferðin sett upp í Google Adwords þar sem fjármagni er deilt á flokkana, boð í leitarorð sett sem og aðrar stillingar varðandi herferðina.
Þegar herferð er farin af stað þarf síðan að fylgjast með nýtingu fjármagns, boðum í leitarorð og hvaða auglýsingar virka best. Þannig er tryggt að fjármagn nýtist með sem bestum hætti. Í byrjun er birtingakostnaður ákveðinn en í lok fyrsta mánaðar er hann endurmetinn með tilliti til árangurs.
Dæmi um kostaða tengla
VERT MARKAÐSSTOFA
VERT markaðsstofa vinnur með fyrirtækjum við að ná árangri með vönduðu sölu- og markaðsstarfi.
Auk þess að framleiða markaðs- og kynningarefni af öllu tagi, sinnum við stefnumótun, rannsóknum, vörumerkjavinnu og markaðssamskiptum, bæði í hefðbundnum miðlum og rafrænum.
VERT er markaðsstofa – við sérhæfum okkur í markaðsmálum.